Jólafínerí :D


Jáh það er ekkert mikið að frétta af okkur hérna ... Öllum heilsast vel ..

nema greyið Mister Skitles en hann dó ... held að hann hafi bara dáið úr taugaáfalli .. skreið inn í jarðaberið sitt og dó .. en ég ætla þá líka bara að jarða hann í Jarðaberinu sínu... en það eru allir búnir að jafna sig á því ... en það er líka doldið síðan ...


En jáhmm .. ég er búin að þrífa allt hátt og lágt .. það eru nú bara jól einu sinni á ári ... svo ég bretti upp ermar og nú er hægt að sleikja hillur og gólf :P hehe en mæli samt ekkert með því .. því að það er að taka smá tíma að húsvenja hann Kubb .. hann er einhvað að ótmæla því að gera þarfir sínar úti .. en er búið að vera alltof kallt úti ...

Hvað um það .. ég og Sveinn sátum hér í gærkvöldi og bjuggum okkur til aðventukrans.. og ég verð bara að viðurkenna það að þetta er bara fínasti jólakrans ;D vel gert hjá okkkur ....

Jáhhhh og ég ég er líka búin að skreyta jólatréið .. Tounge .. nennti ekki að bíða lengur .. oooog gengur svona ágætlega fyrir Lucy og Þórhildi að reyna fikta ekki í því en það virðist vera auðveldara að kenna Þórhildi að maður á bara að skoð með augunum .. heldur en kettinum ...

En jáhmmm nóh um það ... Sveinn vaknaði hér í morgun með bros á vör og fékk að opna dagatalið :P hehe og í dagatalinu var Lest:P

Þangað til næst

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband